Blakdeild Þróttar hefur samið við Raúl Rocha Vinagre frá Spáni um þjálfun meistaraflokkana næsta tímabil. Raúl mun einnig koma að þjálfun yngriflokka, í 2.-4. flokk og jafnframt spila með karlaliðinu en hann er uppspilari. Raúl hefur þjálfað frá 18 ára aldri bæði í yngri flokkum og í hæstu deildum á Spáni. Rául hefur áður starfað á Íslandi en hann þjálfaði og spilaði í Fjallabyggð leiktímabilið 2017-2018.
Einnig hefur Miguel Angel Ramon Melero endurnýjað samning sinn og mun verða yfirþjálfari 2.-.4.flokks ásamt því að þjálfa 2.deild og spila með karlaliðinu.
Við förum spennt inn sumarið fyrir komandi leiktímabili og bjóðum Raúl hjartanlega velkomin í blakfjölskylduna okkar.
Leave A Comment