Þann 2. desember var tilkynnt um kjör íþróttamanns Þróttar fyrir 2018. Fimm voru tilnefnd: Ana Maria Vidal Bouza fyrir blak, Geir Sigurpáll Hlöðversson fyrir karate, Jóhanna Lind Stefánsdóttir fyrir knattspyrnu, Andri Gunnar Axelsson fyrir skíði og Hlynur Karlsson fyrir sund.
Fyrir valinu varð Ana Maria Vidal Bouza. Valal átti frábært tímabil í fyrra og var ein af driffjöðrunum í frábæru gengi kvennaliðsins þegar þær urðu þrefaldir meistarar. Sem uppspilari liðsins stýrði hún liðinu vel. Hún var m.a valin MVP í bikarúrslitum og besti leikmaður Mizuno deildarinnar.
Þróttur óskar Valal og öðrum tilnefndum hjartanlega til hamingju.

Tilnefndir til Íþróttamanns Þróttar 2018

Íþróttamaður Þróttar 2018, Valal Vidal.

Valal Vidal
Leave A Comment